Hvernig blað myndir þú borga fyrir?

Taktík ræddi við fólk um fjölmiðla.

Erum við svona fá og vitlaus?

Og þegar ég segi „við“ á ég auðvitað í raun við ykkur. Og svarið er já. Við hér á Taktík erum kannski fá, en vitlaus erum við ekki. Við höfum komið auga á gapandi gloppu í fjölmiðlamarkaði Íslendinga. Það er nefnilega svo, að þegar nálgast má upplýsingar og skoðanir hvers einasta manns auðveldlega á Netinu opnast glufa fyrir gamaldags prentmiðil sem kostar þig, sem lesanda, stórar fúlgur.

Með prentmiðli getum við gefið okkur gott tóm til að liggja lengi yfir gæluverkefnum, svo að fréttirnar verða orðnar úreltar þegar þær berast þér. Þetta er næsta ómögulegt á netmiðlum. Að auki þarft þú svo að losa þig við heilu bunkana af pappír sem hefði mátt nota í eitthvað annað, værum við á Taktík ekki föst í fjölmiðlaumhverfi frá miðri síðustu öld.

Við höfum á að skipa blaðamönnum sem hafa langa reynslu af að vera hlutdrægir og skrifa þurran texta sem varpar engu nýju ljósi á nokkurn skapaðan hlut, en eru þess í stað mjög iðnir við að koma eigin lífsskoðunum á framfæri. Mun Taktík helgarblað búa yfir slagsíðu? Vitanlega. Hlutlausir fjölmiðlar eru ekki til. Og væru þeir til, væru þeir álíka leiðinlegir aflestrar og skýringar með lagafrumvörpum. Munum við samt halda því fram að við séum hlutlaus, og vinnum í þína þágu? Vitanlega.

Þið verðið bara að treysta okkur. Við ætlum ekki að sýna þér dæmi um hvernig rannsóknarblaðamennsku okkar verður háttað. Það er óþarfi, og mun ekki sannfæra neinn. Það eina sem þú þarft að vita er að þú ert fáviti ef þú lætur okkur ekki fá pening. Ef þú hefur horft á Omega veistu hvernig þetta gengur fyrir sig. Hjálpaðu okkur að hjálpa okkur sjálfum. Gefðu af örlæti, án vissu um að þú fáir nokkuð í staðinn nema dulin hagsmunatengsl og gamlar fréttir í enn eldri búningi.

Ekki vera sökker.

"Loðið, stinnt og rakt – veldu tvennt."

— Russ Meyer

5 leiðir til að taka þátt!

  1. Ég er til í að skoða þetta!
    Þú færð sendan fótgönguliða frá okkur, sem reynir að heilaþvo þig og sannfæra um að þú viljir helst af öllu leggja peninga í þetta þarfa málefni.
    FRÍTT (til að byrja með) 
  2. Skuldbind mig strax í a.m.k. einn mánuð!
    Við vitum öll að þú kemst ekkert út úr þessu ef þú ert á annað borð komin(n) inn. Greiðsluseðill verður sendur með fótgönguliða.
    Frá kr. 2400
  3. Borga strax! Áfram Taktík!
    Þú kaupir hlut í guðsríki. Einstakt kynningartilboð; 13.000 hlutir á verði eins. Vegna þess að hugtakið „einn hlutur“ hefur ekkert gildi. Athugið að hlutur tryggir engin fríðindi.
    Frá kr. 50.000
  4. Hef trú á þessu ef samfélagið fylgir
    Í raun alveg það sama og það að ofan, nema þú þarft ekki að borga fyrr en við höfum safnað 50 fokking milljónum. Athugið að hér er miðað við 50 milljónir að nafnvirði, og þar sem hver hlutur er í raun 13.000 hlutir erum við löngu búin að ná því markmiði. Þú þarft því að borga. Núna.
    Frá kr. 50.000
  5. Á ekki krónu en get…
    Við erum sprotafyrirtæki. Okkur vantar alltaf hressa fótgönguliða til að boða út fagnaðaerindið, í eigin persónu og með skrifum. Endilega hafðu samband. Ekki spyrja hvað Taktík getur gert fyrir þig, heldur hvað þú getur gert fyrir Taktík!
    Kostar blóð, svita og tár